Íslenski boltinn

Sjáðu mörkin og bikarinn fara á loft í gær | Myndband

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Breiðablik varð í gær bikarmeistari í 11. sinn eftir 3-1 sigur á ÍBV á Laugardalsvelli en Blikar eru því handhafar beggja stóru titlanna í íslenskum kvennafótbolta.

Olivia Chance kom Breiðabliki yfir strax á 2. mínútu en Berglind Björg Þorvaldsdóttir bætti við öðru marki Blika fyrir lok fyrri hálfleiks.

Natasha Moraa Anasi minnkaði muninn fyrir ÍBV í upphafi seinni hálfleiks en Fanndís Friðriksdóttir var fljót að svara fyrir Blika.

Mörkin má sjá hér fyrir ofan ásamt því þegar Blikar tóku við titlinum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×