Enski boltinn

Sjáðu mörkin á King Power og allt það helsta úr 8. umferðinni | Myndbönd

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Áttundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar lauk í gær þegar Leicester City og West Brom gerðu 1-1 jafntefli á King Power vellinum í Leicester.

Nacer Chadli kom West Brom yfir á 63. mínútu en Riyad Mahrez jafnaði metin 10 mínútum fyrir leikslok.

Bæði lið hafa verið ísköld að undanförnu en þau hafa ekki unnið leik síðan í 2. umferð. West Brom er í 10. sæti en Leicester í því átjánda.

Mörkin úr leiknum í gær sem og öll tilþrif 8. umferðarinnar í ensku úrvalsdeildarinnar má sjá í meðfylgjandi myndböndum.

Augnablik umferðarinnar
Bestu markvörslur umferðarinnar
Mörk umferðarinnar
Uppgjör umferðarinnar

Tengdar fréttir

Mahrez bjargaði stigi

Vandræðagangur Leicester City í ensku úrvalsdeildinni hélt áfram í kvöld er liðið náði aðeins jafntefli á heimavelli gegn WBA.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×