Fótbolti

Sjáðu markaveisluna hjá Barcelona

Anton Ingi Leifsson skrifar
Barcelona var í banastuði gegn Cordoba í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, en Barcelona skoraði allt í allt átta mörk.

Staðan var 3-0 í hálfleik, en þeir mættu við fimm mörkum í síðari hálfleik. Lokatölur 8-0 sigur Börsunga sem eru á toppnum.

Luis Suarez (3), Lionel Messi (2), Neymar, Ivan Rakitic og Gerard Pique voru á skotskónum fyrir Börsunga. Mögnuð frammistaða og stærsti sigur liðs í La Liga síðan 2008.

Frétt Guðjóns Guðmundssonar um leikinn má sjá hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×