Enski boltinn

Sjáðu magnaða hælsendingu Gylfa

Anton Ingi Leifsson skrifar
Swansea er komið yfir gegn West Bromwich Albion. Nathan Dyer skoraði markið eftir tvær mínútur og okkar maður, Gylfi Sigurðsson, átti þátt í því.

Gylfi Sigurðsson átti þá magnaða stoðsendingu á Nathan Dyer, en Gylfi tók boltann skemmtilega með hælnum.

Swansea hefur skorað fjögur mörk í deildinni í vetur og Gylfi hefur spilað stóra rullu í þeim öllum; skorað eitt og lagt upp þrjú.

Sjáðu stoðsendinguna hans Gylfa hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×