Handbolti

Sjáðu magnað jöfnunarmark Rúnars

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Rúnar Kárason skoraði ótrúlegt mark á lokasekúndum leiks Hannover-Burgdorf gegn Flensburg í þýsku úrvalsdeildinni um helgina.

Eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi skoraði Rúnar sirkusmark eftir sendingu Lars Lehnhoff. Allt ætlaði um koll að keyra enda fögnuðurinn gríðarlegur.

Eftir jafnteflið er Hannover-Burgdorf í þrettánda sæti deildarinnar en Flensburg er í því þriðja og tapaði dýrmætu stigi í baráttunni um síðasta Meistaradeildarsæti. Geir Sveinsson og hans menn í Magdeburg eru þremur stigum á eftir og eiga leik til góða.

Markið hans Rúnars gæti því komið Geir og hans mönnum til góða þegar uppi er staðið.

WOW - das sind Emotionen! Die TSV Hannover-Burgdorf liegt mit einem Tor gegen die SG Flensburg-Handewitt hinten, es ist sind nur noch wenige Sekunden zu spielen: Aber dieses Aktion von Lars #Lehnhoff und Runar #Karason - fantastisch! Der Bericht zum Spieltag: http://on.sport1.de/1Hm2NJG

Posted by SPORT1 Handball on Monday, April 20, 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×