Enski boltinn

Sjáðu leikmenn Watford tryllast af gleði er úrvalsdeildarsætið var tryggt

Leikmenn Watford fagna eftir leikinn gegn Brighton.
Leikmenn Watford fagna eftir leikinn gegn Brighton. vísir/getty
Watford mun leika í ensku úrvalsdeildinni á næsta tímabilið en liðið komst upp um deild um nýliðna helgi.

Watford vann góðan 2-0 sigur á Brighton um síðustu helgi. Middlesbrough tapaði og svo gerði Norwich jafntefli gegn Rotherham og við það var Norwich komið upp.

Strákarnir í Watford-liðinu voru að fylgjast með framgangi mála í rútu liðsins eftir Brighton-leikinn er það var loks staðfest að þeir væru á leið upp.

Það varð allt vitlaust í rútunni eins og sjá má á myndbandinu hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×