Enski boltinn

Sjáðu Klopp taka Sturridge-dansinn | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Klopp er mikill karakter.
Klopp er mikill karakter. vísir/epa
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, sat fyrir svörum á blaðamannafundi á Levi's Stadium í Kaliforníu í gær.

Þessi blaðamannafundurinn var þó með öðru sniði en venjulega því það voru bandarískir krakkar sem spurðu Klopp spjörunum úr.

Sjá einnig: Klopp: Þetta er núna mitt lið

Þjóðverjinn var m.a. spurður hvort hann gæti tekið dansinn sem Daniel Sturridge tekur alltaf þegar hann skorar.

Klopp tók vel í beiðnina og byrjaði að dansa. Það vakti mikla kátínu hjá krökkunum og fljótlega byrjuðu þau að dansa líka.

Það verður þó að segjast að Klopp er líklega betri þjálfari en dansari þótt tilraunin hafi verið góð eins og sjá má hér að neðan.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×