Fótbolti

Sjáðu Keylor Navas gera markmannsmistök ársins

Stefán Árni Pálsson skrifar
Keylor Navas, markvörður Real Madrid, sofnar líklega ekki snemma í kvöld en hann sýndi stuðningsmönnum Real Madrid markmannsmistök ársins í kvöld.

Atvikið átti sér stað í leik Real Madrid og Real Betis og það á 25. mínútu leiksins.

Þá átti Antonio Sanabria skot á markið sem verður að teljast frekar slakt. Navas greip boltann og allt leit út fyrir að Real væri bara á leiðinni aftur í sókn og upp völlinn. Navas náði á einhvern ótrúlegan hátt að skófla boltanum aftur fyrir sig og inn í markið.

Stuttu áður átti Navas í raun að fá rautt spjald þegar hann hljóp út úr markinu og keyrði leikmann Betis niður. Dómarinn dæmi þá ekki neitt og slapp Navas með skrekkinn. Hér að ofan má sjá atvikin tvö.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×