Handbolti

Sjáðu ÍBV koma til Eyja í gær

Anton Ingi Leifsson skrifar
Vísir/Þórdis
Bikarmeistarar ÍBV í handbolta fengu heldur betur höfðinglegar móttökur þegar þeir mættu með Coca-Cola bikarinn til Vestmannaeyja í gærkvöldi. Liðið er nú ríkjandi Íslands- og bikarmeistari.

ÍBV vann FH í gær með einu marki, 23-22, í æsispennandi leik þar sem úrslitin réðust á lokasekúndunum. Fjölmenn stuðningsmannasveit Eyjamanna skellti sér í land og tóku slaginn með sínum mönnum og var stemningin mögnuð í Laugardalshöll.

Herjólfur sigldi svo fólkinu aftur heim í gærkvöldi sem og leikmönnum og þjálfurum bikarmeistaraliðsins. Fögnuðurinn var ósvikinn þegar Herjólfur kom til Eyja upp úr ellefu í gær, en Trausti Hjaltason birti tvö frábær myndskeið á fésbókarsíðu sinni.

Lagið Kveikjum eldana hljómaði eins og oft áður, en einnig var boðið upp á dýrindis flugeldasýningu og fleira.

Myndskeið frá komunni til Eyja má sjá hér að neðan.

Herjólfur siglir inn:
Kveikjum eldana, blys og læti:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×