Enski boltinn

Sjáðu heimsklassavörslurnar hjá De Gea

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
David de Gea var hetja Man. Utd í kvöld en hann sýndi heimsklassatilþrif í leik síns liðs gegn Liverpool á Anfield í kvöld.

Í tvígang þurfti De Gea að taka á honum stóra sínum. Fyrst er Emre Can átti skot af stuttu færi og síðar er Philippe Coutinho átti frábært skot utan teigs.

Þá varði De Gea hreint ótrúlega og þeir eru ekki margir markverðirnir í heiminum sem hefðu varið það skot.

Leiknum lyktaði með markalausu jafntefli. Vörslurnar og helstu tilþrif leiksins má sjá hér að ofan.


Tengdar fréttir

Henderson: Við erum pirraðir

Jordan Henderson, fyrirliði Liverpool, var ekkert allt of sáttur við markalausa jafnteflið gegn Man. Utd í kvöld.

Markalaust á Anfield

Liverpool og Man. Utd buðu ekki til neinnar markaveislu á Anfield í kvöld. Markalaust jafntefli varð niðurstaðan.

Mourinho: Aldrei heyrt svona lítil læti á Anfield

"Þetta eru ekki úrslitin sem við óskuðum okkur en þetta eru engu að síður jákvæð úrslit. Þessi úrslit komu í veg fyrir að einn af okkar andstæðingum fengi þrjú stig á heimavelli,“ sagði Jose Mourinho, stjóri Man. Utd, eftir markalausa jafnteflið gegn Liverpool í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×