Sport

Sjáðu Gunnar lesa skemmtilegar staðreyndir um hann sjálfan

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gunnar hafði gaman af þessum leik.
Gunnar hafði gaman af þessum leik. mynd/ufc europe
UFC í Evrópu hefur staðið fyrir mjög skemmtilegum leik um Gunnar Nelson á Twitter síðustu daga.

Þá var fólk hvatt til þess setja inn skemmtilega staðreynd um Gunnar undir myllumerkinu #GunnarFacts.

Staðreyndirnar voru í stíl sögusagna um Chuck Norris. Sá sem kemur með bestu, og fyndnustu, staðreyndina fær áritaða hanska frá Gunnari. Gunnar velur sjálfur sigurvegarann.

Gunnar settist niður í dag og rúllaði yfir þær helstu og virtist skemmta sér konunglega við lesturinn.

Sjá má það atriði hér og allar tillögur má finna hér að neðan.

MMA

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×