Lífið

Sjáðu Gumma Ben gjörsamlega missa það í lok Englandsleiksins

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Gummi Ben sendi Englendingum skýr skilaboð eftir leikinn í gær.
Gummi Ben sendi Englendingum skýr skilaboð eftir leikinn í gær. vísir
Guðmundur Benediktsson, betur þekktur sem Gummi Ben, missti sig algjörlega, eins og væntanlega meirihluti íslensku þjóðarinnar, þegar slóvenski dómarinn í leik Íslendinga og Englendinga flautaði til leiksloka í gærkvöldi. Sigur strákanna okkar tryggði þeim sæti í 8-liða úrslitum Evrópumótsins og sendi enska landsliðið heim með skottið á milli lappanna.

Gummi Ben lýsti leiknum í Sjónvarpi Símans í gær og hefur Síminn nú birt myndband á Facebook-síðu sinni sem sýnir Gumma á síðustu andartökum leiksins í gær. Þessi ótrúlegi lýsandi fangaði stemninguna vel, nú sem endranær, en Gummi hefur vakið heimsathygli fyrir lýsingar sínar á leikjum íslenska landsliðsins. Klippuna sem Síminn deildi má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

Myndband af mögnuðum stríðssöng í Bankastrætinu

Mikill mannfjöldi var saman kominn í Bankastrætinu um miðnæturbil þar sem sunginn var stríðssöngurinn sem hefur verið einkennandi fyrir íslensku stuðningsmennina í tengslum við EM.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×