Handbolti

Sjáðu Guðjón Val spila á Nou Camp

Guðjón Valur fagnar marki sínu á Nou Camp.
Guðjón Valur fagnar marki sínu á Nou Camp.
Strákarnir í handboltaliði Barcelona eru enn að fagna því að hafa unnið Meistaradeildina.

Í gær fóru þeir úr handboltahöllinni og löbbuðu yfir á knattspyrnuleikvang félagsins, Nou Camp.

Þar var skipt í lið og spiluðu handboltastrákarnir fótbolta. Margir þeirra voru eflaust að upplifa gamlan draum að fá að spila fótbolta á þessum fræga velli.

Guðjón Valur Sigurðsson er lipur knattspyrnumaður og hann náði þeim áfanga að skora á á Nou Camp í gær. Markið mátti sjá í myndbandinu hér að neðan en hefur nú verið klippt út úr myndbandinu einhverra hluta vegna. Vísir getur þó staðfest að Guðjón Valur skoraði vissulega á vellinum fræga.


FCB Handbol: Futbolistes per un dia by fcbarcelona

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×