Handbolti

Sjáðu Guðjón Val raða inn mörkum með Barcelona

Guðjón Valur á flugi í búningi Barcelona.
Guðjón Valur á flugi í búningi Barcelona. mynd/barcelona
Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson hefur farið frábærlega af stað með ofurliði Barcelona.

Hann skorar tæplega tíu mörk í hverjum einasta leik og er heldur betur búinn að stimpla sig inn hjá spænska risanum.

Barcelona valtaði yfir Anaitasuna, 43-30, á þriðjudag og skoraði Guðjón Valur níu mörk fyrir Börsunga en hann var markahæstur ásamt Victor Tomas.

Helstu tilþrif leiksins má sjá hér að neðan.


HIGHLIGHTS - Anaitasuna - FC Barcelona (30-43... by fcbarcelona

Tengdar fréttir

Þetta er einstakur klúbbur á allan hátt

Landsliðsfyrirliðinn Guðjón Valur Sigurðsson var fljótur að stimpla sig inn hjá spænska handboltastórveldinu Barcelona í Katalóníu. Hann skoraði átta mörk í leiknum um Ofurbikarinn á Spáni og segir tilfinninguna að klæðast þessari frægu treyju vera mjög góða.

Guðjón Valur öflugur í öruggum sigri

Guðjón Valur Sigurðsson var meðal markahæstu manna Barcelona í öruggum 34-18 sigri á Eyjaálfumeisturunum á heimsmeistaramóti félagsliða í Katar.

Guðjón og félagar heimsmeistarar

Barcelona, með Guðjón Val Sigurðsson í broddi fylkingar, tryggði sér í kvöld heimsmeistaratitil félagsliða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×