Íslenski boltinn

Sjáðu glæsimark Óskars, dramatíkina í Grafarvogi og markasúpuna á Hlíðarenda

Anton Ingi Leifsson skrifar
Óskar Örn Hauksson skoraði sitt fyrsta mark í Pepsi-deildinni þetta sumarið gegn Stjörnunni og það var af dýrari gerðinni. Nóg af mörkum voru skoruð í dag.

Óskar, sem hefur nú skorað deildarmark í efstu deild fimmtán tímabil í röð, tryggði KR sigur með glæsimarkinu sem kom í fyrri hálfleik.

Meira má lesa um leikinn hér en mark Óskars má sjá í sjónvarpsglugganum hér að ofan. Sterkur sigur KR-inga sem stöðvuðu sigurgöngu Stjörnumanna.

Valur er komið á toppinn eftir nokkuð auðveldan 4-1 sigur á Kára lausum Víkingum. Mörkin má sjá hér og nánari umfjöllun hér.

Í Grafarvogi skildu svo Fjölnir og ÍBV jöfn, 1-1, en ÍBV jafnaði metin í síðari hálfleik. Mörkin úr leiknum má sjá hér en mörkin úr Grafarvogi hefjast eftir rúma mínútu í myndbandinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×