Íslenski boltinn

Sjáðu glæsilegt opnunarmark Pepsi-deildarinnar

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Silfurskeiðin fagnar með Ólafi Karli.
Silfurskeiðin fagnar með Ólafi Karli.
Ólafur Karl Finsen skoraði fyrsta mark Pepsi-deildarinnar þetta tímabilið en það gerði hann með stórglæsilegu skoti beint úr aukaspyrnu gegn ÍA á Akranesi.

Markið kom á 23. mínútu eftir að Pablo Punyed krækti í aukaspyrnu fyrir Skagamenn af um 30 metra færi.

Þess ber að geta að Ólafur Karl skoraði síðasta mark Pepsi-deildarinnar í fyrra er hann tryggði Stjörnunni sigur á FH í dramtískum úrslitaleik í lokaumferð tímabilsins.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×