Fótbolti

Sjáðu glæsilegt hælspyrnumark Vardy | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Vardy skorar sitt fyrsta landsliðsmark.
Vardy skorar sitt fyrsta landsliðsmark. vísir/getty
Jamie Vardy skoraði sitt fyrsta landsliðsmark í gær þegar England vann 2-3 sigur á heimsmeisturum Þýskalands í vináttulandsleik á Ólympíuleikvanginum í Berlín.

Markið var í glæsilegri kantinum en Vardy stýrði sendingu Nathaniels Clyne með hælnum framhjá Manuel Neur í marki Þjóðverja og jafnaði metin í 2-2.

Markið kom á 75. mínútu en Vardy var þá aðeins búinn að vera inni á vellinum í fjórar mínútur. Það var svo Eric Dier sem tryggði Englendingum sigurinn með sínu fyrsta landsliðsmarki í uppbótartíma.

Sjá einnig: Vardy fyrsti Leicester-maðurinn í 31 ár sem skorar fyrir England

Vardy hefur slegið í gegn með Leicester City í vetur en hann er næstmarkahæsti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar með 19 mörk.

Fyrsta landsliðsmark Vardy má sjá hér að neðan.

What can you say? #england

A video posted by England (@england) on


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×