Bíó og sjónvarp

Sjáðu fyrstu stikluna úr Reykjavík

Birgir Olgeirsson skrifar
Komin er fram fyrsta stiklan úr væntanlegri kvikmynd sem nefnist Reykjavík. Handritshöfundur og leikstjóri hennar er Ásgrímur Sverrisson en hún verður frumsýnd í byrjun næsta árs.

Myndin segir frá sambandi Hrings og Elsu sem hangir á bláþræði. Saman eiga þó dótturina Elsu og hafa fundið draumahúsið en plönin fara úr skorðum þegar Elsa vill endurskoða allt líf þeirra.

Hlutverk Hrings og Elsu eru í höndum Atla Rafns Sigurðsson og Nönnu Kristína Magnúsdóttur en með önnur hlutverk fara Guðmundur Ingi Þorvaldsson og Gríma Kristjánsdóttir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×