Bíó og sjónvarp

Sjáðu fyrstu stikluna úr Ghetto Betur: Vopnað rán og yfirheyrslur

Birgir Olgeirsson skrifar
Hér er komin fyrsta stiklan úr þættinum Ghetto Betur sem frumsýndur verður á Stöð 2 27. maí næstkomandi. Þættina vinnur Steinþór Hróar Steinþórsson, betur þekktur sem Steindi Jr., ásamt Lúðvík Páli. Í stiklunni má sjá Breiðhyltingana Gísla Martein og Emmsjé Gauta fremja vopnað rán, Mosfellingana Hjalta Úrsus og Dóra DNA á leiðinni í yfirheyrslu, Reyðfirðingana Andra Frey og Helga Seljan fela fíkniefni í íbúð og Árbæingana Dag B. Eggertsson og rapparann Bent losa sig við lík, svo dæmi séu tekin.

Ghetto Betur er fyrst og fremst spurningaþáttur eins og Gettu betur, en samt ekki. Bæjarfélög munu mætast í þáttunum og koma tveir fulltrúar frá hverju bæjarfélagi.

Keppendur munu þurfa að leysa þrautir, eins og að fremja vopnað rán, standast krefjandi yfirheyrslu af alvöru rannsóknarlögreglumanni og losa sig við lík, eins og sést í stiklunni. Einnig verða öll bæjarfélögin sem keppa í þáttunum heimsótt og fá áhorfendur að kynnast þeim betur.

Þáttastjórnandinn Steindi Jr. mun spyrja keppendur spjörunum úr og þar á meðal verða kvikmyndaspurningar úr hverjum þætti. Steindi tekur fram að ekki hafi verið til fjármagn hjá Stöð 2 til að sýna upprunalegu klippurnar úr kvikmyndunum og því þurfti hann hreinlega að endurgera þekktustu atriði kvikmyndasögunnar. Til að mynda má sjá hann bregða sér í hlutverk John McClane og Loga Geimgengils en hundurinn hans Pulla brá sér í hlutverk læriföður hans, Yoda. 


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×