Sport

Sjáðu frábæran bardaga Jones og Cormier

Jones nær hér góðu sparki á Cormier.
Jones nær hér góðu sparki á Cormier. vísir/getty
Það var sannkallaður risabardagi í UFC um helgina er Jon Jones mætti Daniel Cormier.

Þá náði Jones að verja titil sinn í léttþungavigt í áttunda sinn. Bardaginn fór alla leið en allir dómarar bardagans voru sammála um að Jones hefði unnið. Þetta var fyrsta tap Cormier á ferlinum.

Eftir þennan bardaga eru menn farnir að tala um hvort Jones sé sá besti í sögu UFC.

Það voru mikil læti í aðdraganda bardagans enda virðast Jones og Cormier hata hvorn annan af innlifun. Það skilaði sér í hörkubardaga.

Þennan frábæra bardaga má sjá hér að neðan.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×