Handbolti

Sjáðu flottustu sleggjurnar í Meistaradeildinni | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Marko Vujin á tvö mörk í myndbandinu.
Marko Vujin á tvö mörk í myndbandinu. vísir/getty
Á Facebook-síðu Meistaradeildarinnar í handbolta stendur nú yfir kosning um hvaða mark utan að velli sé það flottasta í Meistaradeildinni fyrir jól.

Margar af bestu skyttum Evrópu á borð við Marko Vujin og Karol Bielecki skoruðu glæsileg mörk í fyrstu átta umferðum riðlakeppninnar sem sjá má hér að neðan.

Hornamaðurinn Uwe Gensheimer læðist þó inn á listann með fallegt marki sem hann skoraði fyrir utan punktalínu, en í raun skoraði Stefán Rafn Sigurmannsson flottara mark gegn Veszprém. Það er þó ekki tilnefnt.

Marko Vujin, sem Alfreð Gíslason þjálfar hjá Kiel, og Bo Spelleberg, einn af lærisveinum Arons Kristjánssonar hjá KIF Kolding Köbenhavn, eru þeir einu sem tengjast Íslandi af þeim sem eru tilnefndir.

Flottustu sleggjurnar: Stefán Rafn átti þriðja flottasta markið í 8. leikviku:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×