Lífið

Sjáðu Bræðsluna í beinni hér á Vísi

Birgir Olgeirsson skrifar
Hljómsveitin Ensími lék öll sín helstu lög á Borgarfirði eystri í fyrra.
Hljómsveitin Ensími lék öll sín helstu lög á Borgarfirði eystri í fyrra. Mynd/Aldís Fjóla Borgfjörð Ásgeirsdóttir
Tónlistarhátíðin Bræðslan er nú haldin á Borgarfirði Eystra í tólfta skipti. Miðar seldust upp á nokkrum mínútum, eins og undanfarin ár, en lesendur Vísis þurfa þó ekki að örvænta því hægt verður að fylgjast með beinni útsendingu frá Bræðslunni hér á Vísi í kvöld.

Dagskráin hefst um klukkan 19:30 en þeir sem koma fram eru Soffía Björg, Gavin James, David Celia, Tina Dickow & Helgi Hrafn, KK Band, Amabadama og Nýdönsk. Má búast við að dagskráni ljúki um klukkan hálf eitt í nótt.

Beina útsendingin er í samstarfi við Nýherja og verður hún aðgengileg í spilaranum hér fyrir neðan. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×