Handbolti

Sjáðu bikarævintýri Eyjamanna frá upphafi til enda | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Eyjamenn eru Íslands- og bikarmeistari.
Eyjamenn eru Íslands- og bikarmeistari. vísir/þórdís
ÍBV varð bikarmeistari karla í handbolta í annað sinn á laugardaginn þegar liðið vann FH, 23-22, í úrslitaleik í Laugardalshöll.

Eyjamenn höfðu beðið lengi eftir öðrum bikarmeistaratitli, en þann fyrri vann liðið árið 1991 þegar það lagði Víking í Laugardalshöll.

Þó leikurinn hafi klárast á laugardagskvöldið er fjölmiðlamaðurinn Sighvatur Jónsson nú þegar búinn að gefa út 30 mínútna heimildamynd um bikarævintýrið.

Þar fylgir hann stuðningsmönnum ÍBV með Herjólfi til Reykjavíkur og aftur heim ásamt liðinu með bikarinn. Þar má sjá einstakar myndir af heimkomunni ótrúlegu við Vestmannaeyjahöfn.

Sighvatur gerði einnig mynd um oddaleikinn í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn sem finna má hér. Nýju myndina má sjá hér að neðan.

Bikarinn til Eyja 2015 - Bikarmeistarar from SIGVA media on Vimeo.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×