Sport

Sjáðu Beckham Jr. skora snertimark ársins í NFL

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Odell Beckham Jr. í gærkvöldi.
Odell Beckham Jr. í gærkvöldi. Vísir/Getty
Nýliðinn Odell Beckham Jr hjá New York Giants sló í gegn með mögnuðu snertimarki í leik í gærkvöldi. Giants tapaði leiknum gegn Cowboys, en frétt gærkvöldsins var sannarlega þetta magnaða snertimark sem má sjá hér að neðan. Á twitter-síðu NFL-deildarinnar er markið kallað það fallegasta í ár.



Ekki nóg með að Beckham Jr. hafi gripið boltann með annari hönd, heldur braut Brandon Carr, leikmaður Cowboys, á honum þegar hann reyndi að toga í hann. Dómarinn henti flagginu, en Giants þurfti ekki að nýta sér dóminn; liðið skoraði.

Fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa sýnt fram á að þetta snertimark virðist ekki vera heppni, því kappinn æfir sig fyrir leiki að grípa boltann með annari hönd í erfiðri aðstöðu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×