Fótbolti

Sjáðu Balotelli skora í sjö marka leik

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Mario Balotelli hefur farið frábærlega af stað með nýju liði, Nice í Frakklandi, og skoraði enn eitt markið þegar liðið að vísu steinlá fyrir Krasnodar frá Rússlandi í Evrópudeild UEFA í gær.

Balotelli hefur skorað fjögur mörk í tveimur fyrstu deildarleikjum sínum með Nice í frönsku 1. deildinni en hann gekk til liðs við félagið frá Liverpool fyrir mánuði síðan.

Hann skoraði ekki í fyrsta Evrópudeildarleiknum sínum með Nice, er liðið tapaði fyrir Schalke fyrr í þessu mánuði, en var á skotskónum í Rússlandi í gær eins og sjá má á meðfylgjandi myndbandi.

Leikurinn í Krasnodar var skrautlegur, eins og sjá má, en mark Balotelli var snoturt. Eftir stendur þó að Nice er stigalaust eftir fyrstu tvo leikina í Evrópudeildinni og þarf að rétta úr kútnum hið fyrsta ætli það sér að komast áfram í 32-liða úrslitin.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×