Fótbolti

Sjáðu Aron skora fyrir Bandaríkin á gamla heimavellinum

Aron fagnar með Bandaríkjamönnum.
Aron fagnar með Bandaríkjamönnum. vísir/epa
Aron Jóhannsson mætti á sinn gamla heimavöll í Árósum í kvöld og gerði sér lítið fyrir og skoraði fyrir bandaríska landsliðið.

Mark Arons dugði ekki til fyrir Bandaríkjamanninn því Nicklas Bendtner var sjóðheitur í liðið Dana og skoraði þrennu.

Jozy Altidore skoraði fyrra mark Bandaríkjamanna sem komust í tvígang yfir. Bendtner sá svo um að klára dæmið. Sigurmarkið í uppbótartíma. Lokatölur 3-2.

Skemmtilegt kvöld engu að síður fyrir Aron á sínum gamla heimavelli og ekki skemmdi fyrir að mamma og pabbi voru í stúkunni.

Altidore opnar veisluna. Bendtner jafnar leikinn. Aron kemur Bandaríkjunum í 1-2.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×