Körfubolti

Sjáðu allt það flottasta frá úrslitaleik HM í körfubolta | Myndbönd

Tómas Þór Þórðarson skrifar
DeMarcus Cousins treður boltanum í körfuna.
DeMarcus Cousins treður boltanum í körfuna. vísir/getty
Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitil sinn í körfubolta í gærkvöldi þegar liðið lagði Serbíu auðveldlega í úrslitaleik, 129-92.

Kyrie Irving, leikstjórnandi Cleveland Cavaliers, var stigahæstur Bandaríkjanna með 26 stig, en James Harden sem leikur með Houston Rockets skoraði 23 stig.

Bandaríkin unnu alla leiki sína á mótinu með að meðaltali 32 stiga mun þrátt fyrir að marga af bestu leikmönnum NBA-deildarinnar vantaði í liðið.

Á Youtube-síðu FIBA má finna fjöldan allan af skemmtilegum myndböndum frá mótinu, en hér að neðan má sjá allt það flottasta úr úrslitaleiknum sem fram fór í Madríd í gær.

Flottasta skotið: Flottasti stolni boltinn: Flottasta stoðsendingin: Flottasta varða skotið: Flottasta hollí hú-troðslan: Flottasta troðslan: Stórleikur Kyrie Irving: Allt það helsta úr leiknum: Tíu flottustu tilþrifin á HM 2014:

Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×