Glamour

Sjáðu Aliciu Vikander sem Lara Croft

Ritstjórn skrifar
Glamour/AFP
Fyrstu myndirnar af sænsku leikkonunni Aliciu Vikander í hlutverki Löru Croft hafa nú litið dagsins ljós en nú standa yfir tökur á Tomb Raider.

Vikander tekur sig heldur betur vel út í hlutverki þar sem hún sér sjálf um að gera allar bardagasenur en myndin er endurgerð á Tom Raider sem kom út árið 2001 þar sem sjálf Angelina Jolie var í hlutverki Löru Croft. 

Áætluð frumsýning á myndinni er mars 2018 og miðað við þetta geta aðdáendur Vikander og Tom Raider farið að hlakka til. 


Tengdar fréttir






×