Jól

Sjá, himins opnast hlið - In dulci jubilo

Sjá, himins opnast hlið,

heilagt englalið,

fylking sú hin fríða

úr fagnaðarins sal,

fer með boðun blíða

og blessun lýsa skal

,;yfir eymdadal;,.

Í heimi er dimmt og hljótt,

hjarðmenn sjá um nótt

ljós í lofti glæðast,

það ljós Guðs dýrðar er,

hjörtu þeirra hræðast,

en herrans engill tér:

,;Óttist ekki þér;,.

Guðs hinn sanni son,

sigur, líf og von

rís mér þér og rætist

þú réttlætisins sól,

allt mitt angur bætist

þú ert mitt ljós og skjól.

,;Ég held glaður jól;,



Björn Halldórsson






×