Viðskipti innlent

Sitt hvað er orð og gjörðir

Skjóðan skrifar
Seðlabankinn hækkar vexti að sögn til að stemma stigu við vaxandi verðbólgu í kjölfar kjarasamninga. Þó er verðbólga lág og fyrirtækin í landinu hafa sum hver lækkað verð vegna þess að kjarasamningarnir eru þeim léttbærari en búist hafði verið við. Erlendis hafa hrávörur lækkað og með styrkingu krónunnar lækka innfluttar vörur. Sé verðbólguógnin raunveruleg stafar hún aðallega af hækkandi fasteignaverði.

Þá ber svo við að Seðlabankinn auglýsir Hildu, dótturfélag Eignarhaldsfélags Seðlabankans, til sölu. Inni í Hildu eru 364 fasteignir, sem metnar eru á 6,6 milljarða. Með því að gefa almenningi í landinu kost á að kaupa þessar fasteignir, sem að drjúgum hluta eru íbúðir, getur Seðlabankinn dregið úr þenslu á fasteignamarkaði og hamlað gegn verðbólgu án þess að nota vaxtatækið.

En Seðlabankinn gefur íslenskum almenningi ekki kost á að kaupa þessar íbúðir. Félagið skal selt í heilu lagi og þeir einir fá að bjóða í það sem geta sýnt fram á að þeir eigi 750 milljónir til að fjárfesta fyrir. Það verða því eingöngu fjárfestingafélög, lífeyrissjóðir og auðkýfingar sem verða boðnir að borðinu. Þessir aðilar hagnast ekki mest á að selja litlar íbúðir til ungra Íslendinga, eins og mest er þörf fyrir, heldur með því að útbúa gistirými fyrir erlenda ferðamenn og lúxusíbúðir fyrir hina efnameiri.

Þessi söluaðferð Seðlabankans kann að hámarka söluverð eignasafnsins til bankans en gengur beint gegn því markmiði bankans að halda verðbólgu í skefjum. Hlutverk Seðlabankans er alls ekki að hagnast sem mest á eignasölu heldur er hans fyrsta og mikilvægasta verkefni að halda verðbólgu lágri.

Fjármálaráðherra hlýtur að kalla eftir skýringum seðlabankastjóra á því hvers vegna bankinn vinnur beint gegn lögbundnu verðbólgumarkmiði með eignasölu á sama tíma og vextir á Íslandi eru margfaldir á við það sem þekkist í nágrannalöndum okkar.

Borgarstjórnarmeirihlutinn í Reykjavík segist vilja auka framboð á litlum, ódýrum íbúðum til að létta húsnæðisvanda ungs fólks. Samt rekur meirihlutinn grimma tekjuöflunarstefnu við sölu á íbúðalóðum, stefnu sem gengur þvert gegn því markmiði að auka framboð á ódýrum, litlum íbúðum.

Borgarstjórinn ­gengur svo langt að ætla að brúa mikinn hallarekstur borgarinnar á fyrri hluta ársins með tekjum af lóðasölu. Tekjur af lóðasölu eru eins skiptis tekjur, sem ekki er hægt að nota til niðurgreiðslu á viðvarandi taprekstri, auk þess sem slík tekjuöflun gengur þvert gegn yfirlýstum markmiðum meirihlutans um aukið framboð á litlum og ódýrari íbúðum fyrir ungt fólk í borginni.

Það er greinilega sitt hvað orð og gjörðir hinna háu herra.

Skjóðan skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu á miðvikudögum. Hún er frekju- og leiðindaskjóða, sem lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×