Heilsa

Sítrónukaka sem slær í gegn

Rikka skrifar

Solla Eiríks bjó til þessa ljúffengu sítrónuköku sem svíkur engan í síðasta þætti Heilsugengisins sem sýndur er á Stöð 2 á fimmtudögum. Þessa köku tileinkaði hún Völu Matt, samstarfskonu sinni og vinkonu.

Botn

100 g kókosmjöl

100 g hnetur, t.d. pekan eða möndlur eða bara…

30 g hreint kakóduft

250 g döðlur

Byrjið á að setja hnetur, kókosmjöl, kakóduft og salt í matvinnsluvél og blandið vel saman. Bætið döðlunum út í og blandið þar til þetta klístrast vel saman.

Fylling



3 dl kasjúhnetur, lagðar í bleyti í 1-2 klst

½ dl xylosweet

½ dl sæta að eigin vali, t.d. hlynsýróp

¾ dl kókosolía, brædd

1 dl sítrónusafi

1 msk. rifinn sítrónubörkur

2 tsk. vanilla

smá sjávarsalt

Allt sett í blandara og blandað þar til silkimjúkt og kornlaust.

Súkkulaði



½ dl kakóduft

¼ dl sæta, t.d. sunroot sweetener

¼ dl kakósmjör

¼ dl kókosolía

Sett í skál og hrært saman með gaffli. Setjið botninn í botninn á muffinsformi og hellið fyllingunni yfir. Hellið síðan súkkulaðinu yfir og frystið í 3 klukkustundir. Best er að geyma kökurnar í frysti.


Tengdar fréttir

Dýrindis súkkulaðimús

Björg Ingadóttur, fatahönnuður og eigandi Spakmannsspjara, kom í heimsókn til Heilsugengisins í þætti þess sem sýndur var á Stöð 2 í gærkvöldi. Solla Eiríks bjó til fyrir hana þessa dýrindis súkkulaðimús sem er sérstök fyrir það að vera búin til úr lárperum en ekki rjóma eins og þessi hefðbundna. Það er því hægt að njóta þessarar án samviskubits

Bráðhollt og bragðgott rauðrófusalat

Í síðasta þætti af Heilsugenginu var Halldóra Sigurdórsdóttir heimsótt, en hún var sárþjáð af vefjagigt og öðrum kvillum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×