Matur

Sítrónu og hvítlauks kúrbítspasta

sigga dögg skrifar
Vísir/Skjáskot

Enn fleiri aðhyllast nú vegan lífstíl þar sem engar dýraafurðir eru notaðar og svo eru einnig margir sem kjósa hveitilausan lífstíl.

Á matarblogginu Oh my veggies má finna urmul af girnilegum uppskriftum þar sem aðal uppistaðan er grænmeti.

Nú þegar uppskeran er í blóma þá er um að gera að nýta grænmetið á saðsaman og frumlegan hátt.

Hráefni

i box litlir konfekt tómatar

1 msk matarolía (notaðu þá sem átt við höndina)

1 tsk þurrkað oreganó krydd

salt

900 gr af kúrbít, rifið niður í lengjur/ræmur

2 msk ferskur sítrónusafi

2 msk extra virgin ólífuolía

1 tsk sítrónubörkur

1 stór hvítlauksgeiri, saxaður

3 msk ristaðar furuhnetur 

Aðferð

1. Hitaðu ofninn á 175 gráður

2. Hrærðu saman tómötunum, olíunni, oreganó og salti og breiddu út á bökunarpappír á ofnplötu og bakaðu í 12-15 mínútur (þar til húðin á tómötunum fer að krumpast), taktu úr ofninum og lefyðu að kólna ögn

3. Léttristaðu furuhnetur á pönnu, fylgstu með þeim, þær geta brunnið á svipstundu

4. Settu krúbíts ræmurnar í stóra skál

5. Hrærðu saman sítrónusafa, ólífuolíu, sítrónuberki og hvítlauk og helltu yfir kúrbítinn og hrærðu saman. Bættu tómötunum ofan á og berðu fram






Fleiri fréttir

Sjá meira


×