Menning

Sinfónían hitar upp fyrir Proms

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Heiður er fyrir hljómsveitina að spila á Proms-tónlistarhátíðinni sem haldin er af BBC, nú 120. sumarið í röð.
Heiður er fyrir hljómsveitina að spila á Proms-tónlistarhátíðinni sem haldin er af BBC, nú 120. sumarið í röð. Fréttablaðið/VAlli
Í tilefni af ferð Sinfóníuhljómsveitar Íslands á hina virtu Proms-tónlistarhátíð í London síðar í mánuðinum verða opnir tónleikar í Eldborgarsalnum í kvöld.

Þar verður sama efnisskrá og hljómsveitin flytur í Royal Albert Hall síðar í mánuðinum: Geysir eftir Jón Leifs, Storka eftir Hauk Tómasson, píanókonsert eftir Schumann og 5. sinfónía Beethovens.



Einleikari er bandaríski píanóleikarinn Jonathan Biss er þykir afar eftirtektarverður. Stjórnandi er Ilan Volkov, sem mun kveðja sveitina í Royal Albert Hall.



Frítt er inn í kvöld og allir velkomnir en gestir þurfa að tryggja sér miða í miðasölu Hörpu þar sem sæti eru númeruð.

 

Proms-tónlistarhátíðin, sem haldin er af breska ríkisútvarpinu BBC, er átta vikna löng hátíð sem fer nú fram 120. sumarið í röð.



Hún fer aðallega fram í Royal Albert Hall í London og samanstendur dagskráin af tugum hljómsveitartónleika auk minni kammertónleika, samtals verða um 100 viðburðir á meðan á hátíðinni stendur.

Proms er án efa ein allra þekktasta og virtasta tónlistarhátíð heims og því mikill heiður fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands að vera boðið að leika á hátíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×