Íslenski boltinn

Sindri Snær mun standa í marki KR gegn FH

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Stefán Logi mun ekki verja mark KR gegn FH um helgina.
Stefán Logi mun ekki verja mark KR gegn FH um helgina. vísir/andri
KR-ingar hafa orðið fyrir áfalli því markvörður félagsins, Stefán Logi Magnússon, er meiddur og þurfti að fara í aðgerð.

„Stefán þurfti að fara í bráðaaðgerð á hné. Hann fór í aðgerðina í gær og hún heppnaðist vel,“ segir Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, er Gummi Ben tók viðtal við hann í morgun fyrir Teiginn.

Stefán Logi verður frá í að minnsta kosti mánuð og því mun varamarkvörður KR, Sindri Snær Jensson, verja mark KR í leiknum gegn FH um helgina og í næstu leikjum.

„Við búum mjög vel að hafa Sindra til taks og því gátum við hugað að heilsu Stefáns. Sindri er öflugur og við eigum unga stráka sem koma inn á æfingar og á bekkinn hjá okkur.“

Viðtalið við Willum verður birt í heild sinni í Teignum á Stöð 2 Sport annað kvöld en þátturinn er á dagskrá klukkan 21.00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×