Lífið

Simpson og Griffin saman í þætti

Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar
Bráðlega mun Simpsons-fjölskyldan mæta Griffin-fjölskyldunni í fyrsta sinnið.
Bráðlega mun Simpsons-fjölskyldan mæta Griffin-fjölskyldunni í fyrsta sinnið. Vísir/Skjáskot
Simpsons-fjölskyldan mætir Griffin-fjölskyldunni í sérstökum þætti. Þetta var tilkynnt á Comic-Con í San Diego nýlega.

Þættirnir Family Guy eru teiknimyndagrínþættir þar sem Griffin-fjölskyldan leikur aðalhlutverkið. Griffin-fjölskyldan inniheldur talandi hund og morðótt en bráðgáfað kornabarn.

Á teiknimyndasamkomunni sýndu framleiðendur Simpsons fimm mínútna langa stiklu úr þættinum, sem margir aðdáendur bíða eflaust í ofvæni eftir að fá að sjá.

Í stiklunni bendir Peter Griffin konu sinni Lois á að mögulega sé óæskilegt að drekka vatnið í Springfield, þar eð allir líta út fyrir að vera með lifrarbólgu. Þetta er þá tilvísun í húðlit persóna The Simpsons, en allar hafa þær eftirminnilega gula húð.

Margir aðdáendur hafa fagnað hugmyndinni, en sameiginlegur þáttur hefur verið ofarlega á óskalista margra. Þó hefur hugmyndin einnig verið gagnrýnd fyrir að vera óþarft sölubragð.

Hér fyrir neðan má horfa á stikluna sem sýnd var á Comic Con.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×