Lífið

Simmi reyndi að kremja dós með enninu: „Okkur vantaði bara atriði í þáttinn“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Sigmar Vilhjálmsson byrjaði á sínum tíma með þáttinn 70 mínútur.
Sigmar Vilhjálmsson byrjaði á sínum tíma með þáttinn 70 mínútur. vísir
Ég og 70 mínútur er nýr þáttur í umsjón Auðuns Blöndal sem er á dagskrá Stöðvar 2 á fimmtudagskvöldum.

Þar fer hann yfir sögu 70 mínútna sem nutu gríðarlegrar vinsælda á sjónvarpsstöðinni PoppTV á sínum tíma.

Í síðasta þætti fór Auðunn Blöndal í gegnum þær áskoranir sem drengirnir þurftu að taka. Nokkrar skemmtilegar voru teknar fyrir og meðal annars var farið yfir þegar Simmi reyndi að skalla Pepsi-dós með það að markmiði að reyna að kremja hana.

Atriðið löngu orðið klassískt og hreinlega stórkostlega fyndið, því það er ekki gott að skalla dós.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×