Síminn gæti þurft að greiða fjóra milljarða í skaðabætur ingvar haraldsson skrifar 3. september 2015 13:00 Orri Hauksson, forstjóri Símans, og aðrir stjórnendur telja Símann ekki þurfa að greiða háar fjárhæðir í skaðabætur. vísir/pjetur
Síminn gæti þurft að greiða fjóra milljarða króna í skaðabætur tapi hann þrem dómsmálum sem rekin eru gegn fyrirtækinu.Samkvæmt því sem kemur fram í árshlutauppgjöri Símans fara Fjarskipti, móðurfélag Vodafone, fram á ríflega 900 milljónir króna í skaðabætur vegna meints ólögmæts verðþrýstings. Þá hafa Inter, samtök aðila er veita internetþjónustu, stefnt Símanum og krefjast þriggja milljarða króna skaðabóta vegna meintra brota á samkeppnislögum. TSC, sem starfar á Snæfellsnesi, hefur stefnt félaginu til greiðslu skaðabóta vegna samkeppnislagabrota. Síminn hefur hafnað málatilbúnaði í öllum málunum og gagnstefnt Fjarskiptum. Í árshlutauppgjörinu kemur fram að stjórnendur Símans telji ekki að koma muni til verulegra fjárútláta vegna málaferlanna. Uppfært 7. september EiríkurGunnsteinsson, lögmaður Inter, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegnamálsins. Yfirlýsingin í heild sinni: Í mars 2013 gerðu Samkeppniseftirlitið og Skipti með sér sátt vegna samkeppnisbrota Símans á nærri tíu ára tímabili. Jafnframt féllust Skipti á að greiða stjórnvaldsekt að fjárhæð kr. 300 milljónir vegna umræddra brota. Stór hluti umræddra samkeppnisbrota beindust gegn minni aðilum á fjarskiptamarkaði en flestir þessara aðila eru í samtökum sem kalla sig INTER, samtök aðila er veita internetþjónustu.Á árinu 2014 fékk INTER óháðan rekstrarhagfræðing til að meta tjón INTER félaga vegna umræddra brota og byggði mat hans m.a. á þeim opinberu gögnum sem lágu fyrir hjá Póst-og fjarskiptastofnun. Niðurstaðan var sú að tjón umræddra aðila væri á bilinu frá 2-4 milljörðum króna eftir því hvaða forsendum byggt væri á. Kröfubréf var sent á Símann en kröfunni var hafnað af lögmanni hans á þeim grundvelli að Síminn teldi skilyrði skaðabótaábyrgðar ekki fyrir hendi. Í kjölfarið var leitað sátta en árangur af sáttaviðræðum var enginn.Það er rangt sem segir í árshlutauppgjöri Símans, og fram kom í frétt á visir.is þann 3. september sl., að INTER hafi stefnt Símanum og málatilbúnaði INTER hafi verið hafnað þar. Þrjú félög innan INTER hafa hins vegar hafið undirbúning að málsókn og verða matsbeiðnir lagðar fram í héraðsdómi á næstunni til að fá mat á því tjóni sem umræddir aðilar hafa orðið fyrir. Þessir aðilar eru minni fjarskiptafyrirtæki, sem starfað hafa m.a. á landsbyggðinni, og hafa orðið fyrir tugmilljóna tjóni árlega á u.þ.b. tíu ára tímabili vegna samkeppnisbrota og má búast við að sá tekjumissir verði til framtíðar.Þegar niðurstaða þeirra matsmála liggur fyrir verður Símanum stefnt til greiðslu skaðabóta vegna ofangreindra samkeppnisbrota.
Mest lesið Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Viðskipti innlent Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Lok, lok og læs hjá Gló Viðskipti innlent Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Viðskipti innlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Fleiri fréttir Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Forsprakki verkefnisins „Stækkaðu framtíðina“ heimsótti Landakotsskóla Sjá meira