Viðskipti innlent

Síminn bauð ekki í réttinn að Meistaradeild Evrópu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Liðsmenn Real Madrid fagna sigri í Meistaradeild Evrópu síðastliðið vor.
Liðsmenn Real Madrid fagna sigri í Meistaradeild Evrópu síðastliðið vor. Vísir/AFP
Óvíst er hvaða sjónvarpsstöð fær réttinn að Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu næstu þrjú árin. 365 Miðlar buðu í réttinn, Síminn gerði það ekki og forsvarsmenn Skjásins vilja hvorki neita né játa hvort þeir hafi skilað inn tilboði.

Frestur til að skila inn tilboðum í sjónvarpsréttinn fyrir keppnistímabilin þrjú sem hefjast árin 2015, 2016 og 2017 rann út klukkan tíu á mánudagsmorgun. Fréttatíminn greindi frá því á dögunum að Síminn hyggðist berjast við 365 miðla um sjónvarpsréttinn. Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir, upplýsingafulltrúi Símans, staðfesti við Vísi að fyrirtækið hefði ákveðið að bjóða ekki í réttinn.

Hjörvar Hafliðason, dagskrárstjóri Stöðvar 2 Sport, staðfesti við Vísi að 365 miðlar hefðu boðið í sjónvarpsréttinn. Þá vilja forsvarsmenn Skjásins ekkert gefa uppi um hvort þeir hafi skilað inn tilboði eða ekki. Fréttatíminn fullyrti þó í frétt sinni að Skjárinn ætlaði ekki að bjóða í réttinn.

„Við veitum engar upplýsingar um hvaða efnisréttindi við sækjumst eftir, nema þá að láta vita þegar við náum þeim. Það er það eina sem þú færð héðan,“ sagði Friðrik Friðriksson, framkvæmdastjóri Skjásins, í svari við fyrirspurn Vísis.

Meistaradeild Evrópu er afar vinsælt sjónvarpsefni í heimi íþróttanna og ljóst að sjónvarpsrétturinn er mjög dýr. Hleypur hann á hundruðum milljóna.

Ekki er vitað hvenær svars er að vænta frá Knattspyrnusambandi Evrópu vegna Meistaradeildar Evrópu. Þegar boðið var í sjónvarpsréttinn fyrir fjórum árum var tilkynnt um niðurstöðuna rúmri viku eftir að lokað var fyrir skil á tilboðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×