Fótbolti

Simeone: Vítaklúður Müller gaf okkur líflínu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Diego Simeone, þjálfari Atletico, var við það að missa stjórn á skapi sínu undir lok leiksins gegn Bayern í kvöld. Hann fagnaði svo ógurlega í leikslok.

Atletico komst í úrslit á útivallarmarki eftir að hafa tapaði 2-1 í kvöld.

„Ég á mjög erfitt með að leyna gleði minni enda ótrúlegur leikur,“ sagði Simeone en hann segir að vítið sem Bayern klúðraði í fyrri hálfleik hafi breytt leiknum.

„Bayern spilaði frábærlega í fyrri hálfleik en vítið sem þeir klúðruðu gaf okkur líflínu. Við urðum að breyta leik okkar nokkuð en sýndum samt styrk okkar. Vítaklúðrið hjá Torres var auðvitað vont fyrir okkur en á endanum var þetta eins og spennandi kvikmynd.“

Atletico spilar gegn Real Madrid eða Man. City í úrslitaleiknum.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×