Enski boltinn

Silva endaði leikinn með súrefnisgrímu og hálskraga | Myndband

Anton Ingi Leifsson skrifar
David Silva, leikmaður Manchester City, var borinn af velli í leik liðsins gegn West Ham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann fékk olnboga í andlitið í leiknum og leit þetta alls ekki vel út í fyrstu.

Silva var borinn af velli eftir að hönd Cheikhou Kouyate fór í andlitið á Silva, en hann var borinn af velli með súrefnisgrímu og hálskraga. Óvíst er enn hvort eða hversu lengi Silva verður frá.

Leiknum lauk með 2-0 sigri City, en James Collins (sjálfsmark) og Sergio Aguero voru á skotskónum.

Myndband af atvikinu má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir

City aftur á sigurbraut | Sjáðu mörkin

Manchester City kom sér aftur á sigurbraut í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir 2-0 sigur á West Ham Ham í fyrsta leik dagsins. City hafði tapað tveimur leikjum í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×