Glamour

Silkimjúkir flauelsdraumar

Ritstjórn skrifar
Glamour/Getty
Nú er kominn tímin til að setja sig í spari- gírinn í klæðaburði.

Eitt vinsælasta efnið um þessar mundir er hið silkimjúka flauel, eða velúr, í ýmsum litum en efnið hentar bæði í spari- fatnað og hvunndagsflíkur.

Glamour mælir með að kíkja á liti eins og vínrautt, flösku- grænt, dimmblátt og karrýgult.

Þetta er jóladressið í ár og við þykjumst vissar um að fataverslanir landsins séu fullar af spariklæðnaði í þessum stíl núna. 

 

 

Á tískupallinum hjá Haider Ackermann.
Sparilegur kjóll frá Miu Miu.
Gul-gyllt flauel er sparilegt og hlýlegt.
Flöskugrænt og vænt.
Pils og toppur í stíl.
Farið í rúllukragann undir kjólinn til að auka notagildið.
Á tískupallinum hjá Vetements.
Svartur síðkjóll frá Ralph Lauren.





×