Viðskipti erlent

Silfurpeningar seldust á 2,2 milljarða

Snærós Sindradóttir skrifar
Silfurpeningurinn fallegi sem seldist á 100 milljónir króna.
Silfurpeningurinn fallegi sem seldist á 100 milljónir króna.
Safn silfurpeninga í eigu bandaríska fjármálaráðgjafan Eugene H. Gardner seldist á uppboði fyrir tæplega 20 milljónir dollara, eða rúmlega 2,2 milljarða króna, þann 23. júní síðastliðinn.

Þetta var þó aðeins fyrsta uppboð af fjórum sem bandaríska uppboðsfyrirtækið Heritage helgar mynt- og seðlasafni Gardners, en næstu þrjú verða haldin síðar á þessu ári og því næsta.

Tíu senta peningur á 100 milljónir

Á uppboðinu seldust allar myntir sem voru í boði, 637 talsins, og var mikil eftirspurn eftir gripunum.

Hæsta verð fékkst fyrir tíu senta pening frá árinu 1796 („Draped Bust, Small Eagledime“) sem sýnir frelsisgyðjuna á framhlið og lítinn skallaörn á bakhlið. Fyrir hann fengust 881 þúsund dollarar, eða rúmlega 100 milljónir króna.

Eugene H. Gardner
Eugene H. Gardner hóf söfnun seðla- og mynta þegar hann var háskólanemi árið 1954 og er safn hans í dag talið vera eitt hið besta í Bandaríkjunum, einkum á sviði silfurmynta. 

Auk þess að hafa rekið fjárfestingarráðgjafarfyrirtækið Gardner Russo & Gardner í Pennsylvaniu áratugum saman hefur hann gefið út bækur um safn sitt, haldið úti vefsíðu um það og þótt leggja mikla áherslu á söfnun gripa sem hafa mikla sögulega merkingu og fagurfræðilegt gildi.

Uppboðið lengdist um tvo tíma vegna eftirspurnar

Í viðtali við coinworld.com sagði forstjóri Heritage, Greg Rohan, að Gardner væri hæstnánægður með niðurstöður uppboðsins og sömu sögu mætti segja með fyrirtækið. 

„Þetta var ótrúlega spennandi,“ sagði Rohan. „Það voru svo margir að bjóða að uppboðið endaði ekki fyrr en rétt fyrir tíu um kvöldið, tveimur tímum síðar en það átti að gera. Þá var uppboðið búið að standa í sjö klukkutíma.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×