Sport

Silfurliðið í svakalegum vandræðum | Myndband

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Derek Anderson leysti Cam Newton af og tapaði.
Derek Anderson leysti Cam Newton af og tapaði. vísir/getty
Carolina Panthers, sem tapaði í Super Bowl-leiknum í NFl-deildinni í amerískum fótbolta í febrúar, er í svakalegum vandræðum í deildinni núna. Panthers tapaði enn einum leiknum í nótt og er 1-4 eftir fimm umferðir.

Panthers var án hins magnaða Cam Newton, leikstjórnanda síns, í mánudagsleiknum gegn Tamba Bay Buccaneers í nótt þar sem hann fékk heilahristing í síðasta leik. Derek Anderson kom inn fyrir hann og kláraði 18 sendingar af 28 fyrir 278 jördum.

Hlauparinn Cameron Artis-Payne skoraði bæði snertimörk Panthers-liðsins í 17-14 tapi en hann hljóp í heildina 85 jarda í 18 tilraunum. Jamies Winston, leikstjórnandi Tamba Bay, kláraði 18 sendingar af 30 fyrir 219 jördum og einu snertimarki.

Dramatíkin var mikil undir lokin því Roberto Aguayo, sparkari heimamanna í Tampa Bay, skoraði sigur vallarmarkið um leið og leiktíminn rann út. Panthers fékk á sig 15 jarda víti fyrir síðasta kerfið sem gerði starf Aguayo mun auðveldara en hann sparkaði af 38 jarda færi.

Sparkarinn var búinn að klúðra tveimur vallarmarkstilranum áður í leiknum en var með ís í æðum þegar leikurinn var undir og kláraði sitt.

Hér má sjá allt það helsta úr leiknum.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×