Skoðun

Silfurberg og landvarsla

Ari Trausti Guðmundsson skrifar
Þegar kemur að lýsingum á því hve merkileg íslensk náttúra er förum við stundum fram úr okkur að margra mati.

Nú er sagt í umfjöllun um vanda Helgustaðanámu að fundarstaðir silfurbergs séu fáir í heiminum. Þessi náma er vissulega afar merkileg, bæði fyrir fyrsta flokks silfurbergsskristalla í eina tíð og vegna þess að hún hefur sögulega sérstöðu. Er fyrsta náman sem tengja má merkum notum af steindinni í raunvísindum og langri sögu silfurbergsnáms.

Þetta friðaða náttúruvætti er einn af örfáum fundarstöðum silfurbergs í Evrópu en ekki heiminum öllum. Verulegt magn af tæru silfurbergi finnst til dæmis á nokkrum stöðum í Bandaríkjunum, í Kína, Ástralíu, Síberíu, Tyrklandi, Mexíkó og þó einkum í Brasilíu. Á eBay er hægt að kaupa tæra kristalla á 6 til 50 dollara eftir stærð og í annarri netverslun er 4 kg kristall til sölu á 126 dollara.

Okkur vantar landverði

Ég nefni þetta hér í samhengi við illa umgengni um námuna og brottnám sýna þaðan, á meðan landvörður nær ekki að koma þar við nema örfáum sinnum á ári. Sú afleita staða er aðalatriðið í þessu máli. Enda þótt á annað hundrað landverðir séu sumarráðnir til að gæta þjóðgarða og annarra friðaðra svæða, dugar það hvergi.

Okkur vantar á þessu og næsta ári annað eins af menntuðum landvörðum sem eru um leið fræðendur ferðamanna, okkur vantar nýja tegund landvarða að auki, þ.e. allstóran hóp sérmenntaðra landvarða með lögregluvald, líkt og þá sem kallast NPS rangers í Ameríku, og okkur vantar mun fleiri menntaða leiðsögumenn, alla með löggildingu (sem flestum ferðahópum væri skylt að hafa hjá sér). Einnig þurfum við að stemma stigu við ólöglegri vinnu í ferðageiranum, t.d. akstri og leiðsögn án tilskilinna leyfa eða tilkynninga og á það m.a. við um erlenda aðila.

 

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Er þetta eðli­legt?

Guðrún Árnadóttir,Guðrún Tara Sveinsdóttir,Hekla Kollmar,Þorgerður Jörundsdóttir skrifar

Sjá meira


×