Viðskipti innlent

Síldarvinnslan kaupir öll hlutabréf í Gullbergi

Atli Ísleifsson skrifar
Seyðisfjörður.
Seyðisfjörður. Vísir/Einar Bragi Bragason
Síldarvinnslan hefur gengið frá kaupum á útgerðinni Gullbergi sem gerir út togarann Gullver og frystihúsinu Brimbergi á Seyðisfirði. Starfsfólk var boðað til fundar klukkan tíu. Fundað var fyrr í morgun með bæjarstjórn Seyðisfjarðar fyrr í morgun. Austurfrétt greindi fyrst frá í morgun.

Á vef Síldarvinnslunnar segir að áfram verði gert út frá Seyðisfirði og áhersla lögð á að tryggja áframhaldandi framleiðslustörf tengd sjávarútvegi í byggðarlaginu, en fyrir rekur Síldarvinnslan fiskimjölsverksmiðju á Seyðisfirði.

„Kaupin eru liður í að styðja við starfsemi Síldarvinnslunnar á Austurlandi. Með því að hafa útgerð og vinnslu á sömu hendi er traustari stoðum skotið undir heilsársstörf og atvinnulíf í byggðarlaginu.

Það hefur verið stefna Síldarvinnslunnar að auka við sig bolfiskheimildir og breikka rekstrargrundvöll félagsins. Megináhersla síðustu áratugi hefur verið á veiðar og vinnslu uppsjávartegunda. Kaupin á Gullbergi eru í takt við áherslu stjórnenda Síldarvinnslunnar að fjölga grunnstoðum í rekstri félagsins.

Gullver NS 12 er 674 tonna skuttogari, tæplega 50 metra langur og smíðaður í Noregi árið 1983. Aflamark togarans á yfirstandandi fiskveiðiári, 2014-2015, nemur 2.855 þorskígildistonnum,“ segir í frétt Síldarvinnslunnar.

Kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×