Óskar Ófeigur Jónsson skrifar:
Haukar og Valur mætast í kvöld í þriðja sinn í úrslitaeinvígi sínu um Íslandsmeistaratitilinn í N1 deild karla. Staðan er 1-1 eftir að Haukar unnu fyrsta leikinn 23-22 á Ásvöllum á föstudagskvöldið og Valsmenn svöruðu með 22-20 sigri í Vodafone-höllinni á sunnudaginn. Leikur kvöldsins hefst klukkan 19.30 á Ásvöllum.
Mikilvægi leiksins í kvöld sést best á sögu úrslitaeinvígisins. Í tíu úrslitaeinvígum karla þar sem staðan hefur verið jöfn 1-1 þá hefur sigurvegari þriðja leiksins unnið Íslandsmeistaratitilinn í níu skipti. Átta sinnum hefur sigurvegari þriðja leiksins meira að segja klárað einvígið strax í fjórða leiknum og unnið því einvígið 3-1.
Það er aðeins ein undantekning frá því að liðið sem vinnur þriðja leikinn, í stöðunni 1-1, klári Íslandsmeistaratitilinn. Það er lið KA-manna frá 2001. KA-menn unnu þá þriðja leikinn á móti Haukum örugglega með níu marka mun á heimavelli (27-18) en Haukarnir gáfust ekki upp heldur tryggðu sér titilinn með því að vinna síðustu tvo leikina.
Einvígi um Íslandsmeistaratitil karla þar sem staðan hefur verið 1-11992 FH-SelfossÞriðji leikur: FH vann 28-25 í Kaplakrika
Íslandsmeistari: FH (3-1)
1993 Valur-FHÞriðji leikur: Valur vann 25-23 í Laugardalshöll
Íslandsmeistari: Valur (3-1)
1994 Haukar-ValurÞriðji leikur: Valur vann 29-22 á Strandgötu
Íslandsmeistari: Valur (1-3)
1995 Valur-KAÞriðji leikur: Valur vann 24-23 á Hlíðarenda
Íslandsmeistari: Valur (3-2)
1997 Afturelding-KAÞriðji leikur: KA vann 29-26 að Varmá í Mosfellsbæ
Íslandsmeistari: KA (1-3)
1999 Afturelding-FHÞriðji leikur: Afturelding vann 26-23 að Varmá í Mosfellsbæ
Íslandsmeistari: Afturelding (3-1)
2000 Fram-ValurÞriðji leikur: Valur vann 27-22 í Framhúsinu í Safamýri
Íslandsmeistari: Valur (1-3)
2001 KA-HaukarÞriðji leikur: KA vann 27-18 í KA-húsinu [Undantekningin]
Íslandsmeistari: Haukar (2-3)
2003 Haukar-ÍRÞriðji leikur: Haukar unnu 34-22 á Ásvöllum
Íslandsmeistari: Haukar (3-1)
2009 Haukar-ValurÞriðji leikur: Haukar unnu 28-25 á Ásvöllum
Íslandsmeistari: Haukar (3-1)
2010 Haukar-ValurÞriðji leikur: Í kvöld klukkan 19.30 á Ásvöllum