Sport

Sigursæll BMX-hjólreiðamaður skaut sig til bana

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Dave Mirra er fallinn frá.
Dave Mirra er fallinn frá.
BMX-hjólreiðamaðurinn Dave Mirra fannst látinn í Norður-Karólínu í Bandaríkjunum í gær. Hann tók eigið líf með því að skjóta sig til bana. Þetta kemur fram á vefsíðu BBC.

Mirra var 41 árs gamall, en hann var einn sigursælasti keppandi X-leikana frá upphafi. Hann til verðlauna á leikunum á hverju ári frá 1995-2008 og vann í heildina fjórtán gullverðlaun.

Mirra vann á ferlinum 24 verðlaun á X-leikunum, en það met stóð sig 2013 þegar hjólabrettamaðurinn Bob Burnquist gerði betur. Aðeins snjóbrettagoðið Shaun White hefur unnið fleiri verðlaun en þeir tveir.

Þessi vinsæli hjólreiðamaður gerði mikið fyrir íþróttina. Vinsældir hans voru miklar og stýrði hann meðal annars raunveruleikaþætti tengdum BMX-hjólreiðum á MTV. Þá voru tveir BMX-tölvuleikir skírðir í höfuðið á honum.

Dave Mirra sýnir listir sínar á X-leikunum.vísir/getty
Mirra var fyrsti maðurinn til að lenda tvöföldu heljasrstökki aftur á bak á BMX-hjóli árið 2000 og níu árum síðar var hann fyrstur til að lenda 360 gráðu heljarstökki aftur á bak án þess að snerta stýrið.

Áður en hann tók eigið líf var Mirra byrjaður að keppa í járnkarli. Hann náði lágmarki og keppti á heimsmeistaramótinu í Kanada 2014.

Allen Thomas, forseti Greenville, heimabæjar Mirra, var mjög sorgmæddur þegar hann frétti af sjálfsvíginu. „Hann var frábær vinur og einstakur maður. Við syrgjum andlát góðs vinar okkar sem snerti líf svo margra með hæfileikum sínum,“ sagði Thomas.

„Hann kallaði Greenville í Norður-Karólínu heimili sitt og var auðmjúkur maður sem gaf sér tíma til að ræða við krakka um hjólreiðar á hverju götuhorni. Þessi ungi maður sem hafði svo mikið til að gefa var tekinn frá okkur alltof snemma.“

Hjólabrettagoðsögnin Tony Hawk er enn fjölmargra sem tjáir sig um fráfall Mirra, en á Twitter-síðu sinni segir hann: „Bless, Dave Mirra. Sannur brautryðjandi, átrúnaðargoð og goðsögn. Takk fyrir minningarnar. Hjarta okkar er brotið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×