Bílar

Sigurjón sigurvegari í fyrstu driftkeppni ársins

Finnur Thorlacius skrifar
Einn keppenda á fullu skriði á laugardaginn.
Einn keppenda á fullu skriði á laugardaginn.
Laugardaginn 21. maí fór fram í rjómablíðu fyrsta umferð Íslandsmeistara móts í skriðakstri (drift). Mótið sem er á vegum Akstursíþróttasambands Íslands var haldið af Driftdeild Akstursíþróttafélagi Hafnafjarðar og voru 23 keppendur skráðir til leiks á rallýcrossbrautinni í Hafnarfirði.

Aðeins einn forfallaðist og mættu því 22 keppendur til leiks, tilbúnir í að leggja allt í sölurnar til sigurs. Keppnin gekk frábærlega fyrir sig og var fyrst keyrð forkeppni þar sem hver ökumaður ekur þrjár umferðir í brautinni og er dæmdur eftir tveimur þeirra seinni og gildir sú betri af þeim til stiga.

Mest var hægt að fá 100 stig fyrir fullkomna ferð. Dæma dómarar eftir línu bílsins í gegnum brautina, gráðu á beygju bílsins í brautinni og stíl ökumannins á meðan á akstri stendur. Eftir að úrslit forkeppninar voru ljós hófst útsláttarkeppni en þar aka keppendur tveir saman hvor á móti öðrum og hefur sá betur sem fær fleiri stig frá dómaratríóinu.

Keppnin á laugardaginn var æsispennandi og ljóst að ekkert verður gefið eftir í sumar og baráttan um fyrsta sætið verður mikil. Í lok dags stóð Sigurjón Elí uppi sem sigurvegari en úrslit keppninar í heild sinni urðu þessi:





Sæti

Nafn

Stig

1

Sigurjón Elí Eiríksson

112

2

Þórir Örn Eyjólfsson

90

3

Patrik Snær Bjarnason

78

4

Aron Jarl Hillers

56

5-6

Ármann Ingi Ingvason

34

5-6

Júlíus Brynjar Kjartansson

34

7-8

Árni Rúnar Kristjánsson

33

7-8

Konráð Karl Antonsson

33

9-12

Birgir Sigurðsson

12

9-12

Haukur Gíslason

12

9-12

Kristjón Sigurður Kristjónsson

12

9-12

Stefán Þór Gunnarsson

12

13-16

Arnar Freyr

11

13-16

Aron Steinn Guðmundsson

11

13-16

Hlynur Skúli Skúlason

11

13-16

Snæþór Ingi Jósepsson

11

17-22

Andri Steinar Jónsson

0

17-22

Arnar Már Arnarsson

0

17-22

Helgi Hrafn Emilsson

0

17-22

Ívar Már Sigurpálsson

0

17-22

Jón Þór

0

17-22

Þórir Már Ingvason

0




Fleiri fréttir

Sjá meira


×