Viðskipti innlent

Sigurjón einbeitir sér að Sprengisandi

Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi á Bylgjunni á sunnudagsmorgnum.
Sigurjón M. Egilsson stýrir Sprengisandi á Bylgjunni á sunnudagsmorgnum.
Sigurjón M. Egilsson hefur látið af starfi fréttastjóra 365 að eigin ósk. Hann hyggst einbeita sér að þætti sínum Sprengisandi á Bylgjunni auk þess sem frekari dagskrárgerð fyrir Bylgjuna verður kynnt innan tíðar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá 365.

„Sigurjóni eru þökkuð vel unnin störf á fréttastofunni. Jafnframt er því fagnað að hann muni áfram vera áberandi í dagskrá 365 miðla. Samhliða þessu verða þær skipulagsbreytingar á fréttastofunni að Andri Ólafsson, Hrund Þórsdóttir og Kolbeinn Tumi Daðason verða aðstoðarritstjórar og Halldór Tinni Sveinsson verður þróunarstjóri,“ segir í tilkynningunni.

Þá verður Kristín Þorsteinsdóttir áfram útgefandi og aðalritstjóri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×