Sport

Sigurinn dæmdur af Anderson Silva

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Anderson Silva vann Nick Diaz en það verður ekki skráð í sögubækurnar.
Anderson Silva vann Nick Diaz en það verður ekki skráð í sögubækurnar. vísir/getty
Anderson Silva, besti MMA-bardagamaður sögunnar að flestra mati, vann Nick Diaz í endurkomu sinni í UFC um síðustu helgi, en hann sneri þar aftur eftir þrettán mánaða fjarveru vegna fótbrots.

Silva og Diaz féllu báðir á lyfjaprófi sem þeir fóru í 9. janúar, en niðurstöðurnar voru birtar tveimur dögum eftir bardagann.

Nú hefur íþróttanefnd Nevadaríkis ákveðið að bardaganum verði breytt í svokollað „No Contest“ en hann fór fram í Las Vegas. Bardaginn hefur sem sagt verið felldur úr gildi.

„Ég veit ekki hvort hann fái sigurbónusinn samt sem áður eftir þessa breytingu. UFC-sambandið ræður því. Hann fær þó ekki öll sigurlaunin,“ segir Bob Bennett, framkvæmdastjóri Nevada State Athletic Commission, NSAC.

Sögubækurnar munu því ekki sýna fram á sigur Silva í bardaganum, en þetta var 18. bardaginn hans í UFC. Hann hefur því ekki unnið í þremur bardögum í röð.

Silva tapaði í tvígang fyrir Chris Weidman, 6. júlí og 28. desember 2013, en Brasilíumaðurinn fótbrotnaði í seinni bardaganum og var lengi frá vegna meiðslanna.

Síðast vann hann Stephan Bonnar í UFC 153 sem fram fór 13. október 2012. Silva varði þá heimsmeistaratitilinn í léttþungavigt.

Þetta er svartur blettur á ferli þessa annars magnaða bardagakappa sem hélt heimsmeistaratitlinum lengur en nokkur annar í sögu UFC.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×